Hafa samband
alarm@alarm.is
Mynd af inntakskassa. (Gólfhitakerfi - Forðakútur).
Forðakútur
Raf-Bræður ehf sími. 896 5086
* Virkni stýringar *
Þegar stýringin er tekin í notkun í fyrsta sinn
þá þarf að stemma af hita í potti og á potthita skjá.
Mæla skal potthita t.d með kjöthitamæli, mæla skal
hitan þar sem hitaneminn er í pottinum og lesa svo á
hitan á potthita-skjá og leiðrétta svo mismuninn,
sjá.: Leiðrétta potthita (blað 3).
Virkni: Þegar potthita er náð þá kveiknar ljósið (Blandað vatn Á)
og blöndunarhiti stillist ca í 39°C. Þegar pottur óskar eftir meiri
hita þá lokast fyrir blöndun (ljósið slokknar) og hiti frá varmaskipti
fer út í pott, fínt er að hafa hann ca 50-55°C 3-4 l/mín.
Þegar fylla skal pottinn þá þarf að kveikja á stýringunni og ýta á rofa
(Kalt vatn - Fylla pottinn), þá blandast kalt vatn með í 1.klst.
Þetta er til þess að potturinn verði ekki of heitur í byrjun.
Hægt er að kæla vatnið í pottinum einnig með þessum rofa.
Þegar slökkt er á stýringunni þá endurstillist tíminn.
Ef pottahiti fer yfir (stiltan pottahita +5°C) þá opnast botnloki í 10.mín,
þá þarf að kæla pottinn, ýta á kalt vatn rofan.
Þegar ýtt er á (Kalt vatn - Fylla pottinn) þá kveiknar ljósið (Blandað vatn Á)
og SSB31 stillir keyrir í átt að (1) og Rafst-kúluloki opnast (Kalt vatn rennur).
Lokað verður hjá okkur
10.okt til 21.okt.